Þriðjudagur 10. apríl
Engin athugasemd
Í gær var ég búin að skrifa alveg fullt og gleymdi að srifa það á word og srifaði það beint hér inn. Svo þegar ég ætlaði að vista það hér inni þá datt allt út. Núna er ég hálf veikur hér í skólnum og nenni ekki að skrifa neitt mikið þannig að Það kemur bara seinna.
Hins vil vegar vil ég vekja athygli ykkar á tónlistar manni sem Heitir Tetty Geiger sem er aðeins 18. ára gamall og kemur frá New York.
flestir þekkja öruglega lagið hans Fore you i will en ég var að hlusta á plötuna hans sem hetir heitir underage thinking þar og þessi plata er alveg snilld.
tékkið á www.myspace.com/teddygeiger
tékkið líka á nújasta nýtt frá Blue October en þeir voru með smellin Hate Me sem ég reyndar fílaði ekkert svo vel en þetta er snilld og heitir Into the ocean.
www.myspace.com/blueoctober
Á föstudaginn horðfi ég á Melrose Place.
Ég held að ég hafi ekki verið búin að horfða á þennan þátt í viku en á þeirri viku var allt búið að ske.
Jane var bæstum því drepin af Sidney systur sinni vegna þess að Sidney var svo fúl yfir því að Jane og Michel (fyrrverandi hennar Jane) voru að stinga saman nefjum, Jane og Jake voru farinn að hittast, Kimberly orðin læknir aftur en í þetta sinn var hún orðin geðlæknir vegna þess að hún fékk svo mikla vitrun á geðspítalanum sem hún var á vegna þess að hún var geðklofi.
Amanda var hætt að hitta Pete og var aftur farinn að hitta gaurinn úr vondu fjölskyldunni, Billy og klikkaða gellan voru að skilja og síðast en ekki síst var Alison búin að falla nokkrum sinnum vegna áfengisvandamálsins en þegar ég horfði á þáttin var hún enn og aftur lent á báðum fótum og farinn að hjálpa klikkuðu gelluni sem Billy var giftur að ná í hann aftur en Alicon og Billy voru jú einu sinni saman og alicon var alltaf að reyna að ná Billy aftur.
Ég held að málshátturinn skjótt skipast veður í lofti sannist alveg í þessum þætti.
Það skiptir samt engu hversu mikið ég bölva þessum þætti, ég enda alltaf með því að horfða dáleiddur á hann aftur og aftur og hugsa. '' Hvernig stendur á því að ég sé búin að missa svona mikið af þessum þætti.
Annars var helgin ágæt og nú er komin ný frost vika og megið þið bara eiga góðar stundir - Takk fyrir.
Svenni
Iceland Airwaves 2006
Stæðsta tónlistarhátíð Íslands er byrjuð og stendur til 22. okt.
Ég er að hugsa um að kíkja aðeins út á morgun og skoða alla þessa tónlist sem verið er að bjóða uppá.
Iceland Airwaves '06 fer fram á 7 aðal tónleikastöðum í miðborg Reykjavíkur sem eru
- Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhús
- NASA
- Gaukurinn
- Þjóðleikhúskjallarinn
- Pravda
- Grand rokk
- Iðnó
Og svo er að sjálfsögðu nóg annað að ske í bænum um helgina.
Úff hvað ég get verið latur að blogga á þessari síðu.
Ég er í vetrarfríi í skólanum og það er búið að vera geggjað. Á Fimmtudaginn var mojito kvöld hjá Tinnu og ég held að ég hafi drukkið mojito fyrir næsta árið en við gerðum jarðaberja mojito, bláberja mojito, hindberja mojito og og svo aðsjálfsögðu klassíksan mojito en hindberja mojotoin bar alveg fram úr. Það var samt alveg ótrúlega gaman og við spiluðum Party & Co spilið sem er án efa skemmtilegasta spili sem hægt er að spila.
Föstudeginum eyddi ég í smá þynnku en ákvað nú samt að laga til heima og skellti mér í afmælis veislu til bróður bróður minns sem var að halda uppá þrítugsafmælið sitt.
Eftir afmælið fór ég með Tinnu og Láru aðeins út og kikti í bæinn en Lára hefur ekki farið út í tæpt ár enda ný orðin móðir. Hún skemmti sér samt alveg konunglega vel.
Ég var blá edrú þar sem ég hélt að ég ætti að fara að vinna en þegar ég var komin í skaftahlíðina var allt saman lokað og læst og engin til þess að opna fyrir mig.
Ég náði nú samt að finna einhvern öryggisvörð sem hleypti mér inní stúdíoið en það var engin playlisti og ég þorði ekki að fikta í því þannig að það var engin vinna fyrir mig L.
Ég var alveg nett pirraður en náði samt ágætis svefni fyrir vikið.
Í gær var svo bara tekið því rólega og ég fór bara í bíó á Deivils wheres Prada sem var geggjuð.
Kíkti svo til Tinnu og fór að sofa snemma.
Úff djöfull er hægt að blaðra mikið um ekki neitt.
Ég hélt að ég fengi fasta tíma á Fm í vikunni en hann ætlar að láta okkur bíða aðeins lengur en við erum tveir sem erum að að byrja að vinna þarna.
Það koma tveir tímar til greina og það er 10:00 til 14:00 og 18:00-22:00 en ég verð samt eitthvað að leysa Fm partýið af sem er flott enda ekkert smá skemmtileg músikk þar á ferð.
Svo erum við Eyja að fara að taka þátt í leiklistanámskeiði í skólanum og fáum tvær einingar fyrir það sem er snilld.
Ég verð samt að koma því á framfæri hvað ég dáist mikið af Amish fólki.
Þau misstu börn úr samfélaginu sínu eftir að maður kom vopnaður byssu og skaut þau og endaði svo með því að skjóta sjálfan sig.
Nú er Amish fólkið búið hringja í konuna hans og segja við hana að þau samhryggist vegna hennar missis.
Hugsiði ykkur hvað fólk getur verið sterkt og flott.
Ég held að það sé nefnilega rétt að það sé ekki hægt að komast almennilega yfir svona missi nema að maður geti gert svona hluti og ég held að þetta fái mann til þess að líða miklu betur.
Jæja það er nú ekki mikið meira að frétta af mér.
Það fer nú að styttast í það að Edda, Smári og Vedís koma til landsins sem verður alveg snilldJ
Helgin búin og það er komin mánudagur en ég er búin að reyna að skrifa hér inná þetta blog í 2 skipti og alltasf dettur talvan út þannig að ég nenni ekki skrifa nema nokkra punkta.
Svona var nú helgin mín.
Mánudagur komin og nóg að gera þessa vikuna enda skólin í hámarki þessa dagana.
Herinn líka farinn sem er ágætt en síðustu hermennirnir fóru á laugadag og það verður því spennandi að fylgjast með hvað verður gert við allt þetta svæði á Suðurnesjunum.
Kv,
Svenni
Mikið rosalega leiðist mér.
Er að bíða eftir að Soffía komi úr vinnuni svo hún geti drepið mér tíman til þrjú þar sem ég er að fara á Fm þá og verð frá 3 til 6.
Ég er nefnilega í þjálfun þannig að ég verð eitthvað á nóttuni næstu helgar sem er bara mjög fínt þrátt fyrir að það sé smá spúkí að að vera svona einn inná 365 miðlum, sérstaklega ef ég er að fara að fá mér sígó þar sem ég þarf að labba í gegnum dáldið dimman gang.
Ætti samt að vera í lagi núna þar sem ég er búin að finna ljósarofan til þess að kveikja ljósin.
Þetta er samt algjör snilld og ég get ekki sagt annað en að ég sé mjög ánægður með að vera búin að fá vinnu þarna![]()
Svo er ég líka komin með vinnu hjá VÍS í þjónustuverinu hjá þeim þar sem ég verð alla miðvikudaga og fæ heilan 25.000 kalla á mánuði sem er snilld fyrir að vera bara einu sinni í viku. svo er líka búið að lofa því að ég fáið 9-5 vinnu þar í sumar og ALDREI um helgar sem er frábært.
Skólin gengur vel en ég mætti samt aðeins fara passa betur uppá þetta svo ég dragist nú ekki aftur úr.
Svo er að sjálfsögðu afmæli hjá Sollu á morgun en hún er orðin tvítug þessi eðal rolla.... hehe (einkahúmor).
Allavega ef þið verðið andvaka um helgina þá er ég á Fm milli 3 og 6 um helgina þannig að endilega sofniði bara útfrá mér![]()
Kv,
Svenni
Gaman að þessu.
Afsökunarbeiðni frá kosningarstjóra Framsóknarflokksins.
Það leiðinlega atvik átti sér stað í lok síðustu viku að ungur sjálfboðaliði á vegum framboðsins uggði ekki að sér og lagði jeppabifreið sem framboðið hefur á leigu í stæði merkt fötluðum. Þetta atvik er harmað og um leið beðist afsökunar á þessu. Slíkt á ekki að geta komið fyrir en því miður átti þetta sér stað og sjálfboðaliðinn er miður sín vegna þessa.Jæja það er komin tími á það að ég skrifi eitthvað hér.
Nú er ég byrjaður að vinna á Café París og það er alveg frábært.
Hann er orðin ekkert smá flottur og mórallainn þarna alveg til fyrirmyndar þannig að ég ætla að vera þarna í sumar í fullri vinnu og svo verð ég í einhverri smá aukavinnu í vetur þegar ég fer aftur í skóla.
Ég er nefnilega að vonast eftir því að komast inní FB í haust.
Í vinnuni minni koma rosalega margir túristar og kaupa sér mat og drykk og eins og við Íslendingar vitum þá er það ekkert mjög ódýrt að kaupa mat og drykk á veitingastöðum hér heima.
Það finnst samt greinilega ekki útlendingunum.
Þeir eru kannski með reikning uppá 11.000 (fyrir bara tvær manneskjur) en virðast amt alltaf tilbúnir til þess að tipsa okkur.
Það ætti að vera svona bæklingur á hótelherbergjunum hjá þessu fólki um það að við séum ekki í þessari tipps menningu.
Það er nefnilega ekkert mjög þægilegt að taka á móti tippsi frá einhverjum sem er búin að borga allt of mikið mikið fyrir.
En þetta er fínt þar sem staffa sjóðurinn okkar fyllist og fyllist.
Nú er bensínið orðið allt of dýrt.
Í síðustu viku var líterinn komin uppí 127. krónur.
Þá ákváðu allir að hætta að nota bílinn sinn, keyptu sér hjól og græna kortið í strætó.
Svo núna fyrir helgi lækkaði líterinn niður í 124. kr.
Þá skiluðu allir hjólinu sínu, hentu græna kortinu og fóru að nota bílinn þar sem bensínið var aftur orðið ‘’ Ódýrt ‘’.
Við erum öll alveg klikkuð.
Minni ykkur á að það er óðum að styttast í Köben ferð mína.
Aðeins 22 dagarJ